Sigling og matur 13.900 kr
LÚXUSKVÖLD VIÐ GÖMLU HÖFNINA

SNEKKJUFERÐ Á HÖRPU OG ÞRIGGJA RÉTTA VEISLA

Snekkjan Harpa opnar 17.30. Við siglum úr gömlu höfninni frá bryggjunni beint fyrir neðan Veitingastaðinn Kopar kl. 18.00 og sjáum, borgina frá nýrri hlið. Siglum að Viðey og Engey áður en við komum aftur í höfn eftir u.þ.b. 45 mínútur. Þegar komið er aftur í land eftir skemmtilega siglingu, bíður forréttur, aðalréttur og eftirréttur á veitingastaðnum Kopar sem er við bryggjusporðinn. Harpa er 21 metra löng snekkja og mjög stöðug, gott innipláss í sal og setustofu, veitingasalur og salerni. Hægt að ganga um og sitja frammá eða uppi á efra þilfari og njóta þar útsýnins. Lágmark í hverja ferð er 12 manns.

Verð fyrir siglingu og forrétt, aðalrétt og eftirrétt á Kopar
13.990 kr
Tími í siglingu er u.þ.b. 45 mínútur.

Hægt að er fá Vegan útgáfu af matseðlinum. Vinsamlegast hafið samband fyrir nánari upplýsingar.

Sigling og forréttur, aðalréttur og eftirréttur á veitingastaðnum Kopar eftir siglinguna.
SIGLING OG MATUR

MATSEÐILLINN

  • Forréttur – Reykt bleikja með epla salsa, jarðskokkaflögum og dill kremi

  • Aðalréttur – Fiskur dagsins –Ferskur fiskur og ferskar hugmyndir. Við hlökkum til að koma þér á óvart.

  • Eftirréttur – Tiramisu

Svo fyrir 15.900 að þá er hægt að skipta út Fisk dags fyrir lambakórónu

Grilluð lambakóróna
Borin fram með kartöflumús, soðgljáa, grænertumauki, grænkáli og grilluðum gulrótum.

FREKARI
UPPLÝSINGAR OG BÓKANIR

  • (+354) 779-7779

  • info@snekkjan.is

Bóka ferð